IJS dómaranámskeið-Dagskráin 17-19 september 2010
Þjálfaranámskeið ÍSS - Dagskráin 18 september 2010
Haustmót ÍSS 2010 mikilvægar dagsetningar:
Skautasamband Íslands (ÍSS) var stofnað árið 1995 og var í upphafi deildarskipt. Hlaupadeild og Hokkídeild. Hlaupadeild Skautasambandsins hafði yfirumsjón með Listhlaupi á skautum, auk þess sem gert var ráð fyrir að Skautahlaup félli undir þá deild líka. Síðan bættist Samhæfður skautadans við og tilheyrði það Hlaupadeildinni.
Formenn Listhlaupadeildar frá upphafi til loka:
1995 - 1996 Hannes Sigurjónsson
1996 - 1997 Marjo Kristinsson
1997 - 2004 Elísabet Eyjófsdóttir
Í nóvember 2004 átti sér stað aðskilnaður á milli deilda með stofnun Hokkísambands og við það fluttist Hokkídeildin yfir í hið nýja samband. Þær greinar sem áður féllu undir Listhlaupadeild tilheyrðu Skautasambandinu áfram. Eftir aðskilnaðinn við Hokkí var Elísabet Eyjólfsdóttir kosin formaður og gengdi því hlutverki fram að 17. maí 2007, June Eva Clark tók þá við formennsku Skautasambands Íslands.
Formenn Skautasambands Íslands:
2004-2007 Elísabet Eyjólfsdóttir
2007 - June Eva Clark
Í dag eru þrjú aðildarfélög, en þau eru:
Ísknattleiksfélagið Björninn
Skautafélag Akureyrar
Skautafélag Reykjavíkur
Hjá þessum félögum eru í dag yfir 700 iðkendur misjafnlega lant á veg komnir.
Í febrúar 2000 fékk Hlaupadeild Skautasambandsins tímabundna aðild að Alþjóðlega Skautasambandinu (ISU ). Til þess að fá fulla aðild þá þurfti Hlaupadeild Skautasambandsins að uppfylla þær kröfur sem ISU setti. Árið 2002 fékkst síðan fullgilding á fullri aðild að ISU. Frá þessum tíma hafa orðið miklar framfarir og mikið uppbyggingarstarf í Listhlaupi á skautum hér á Íslandi, því að með aðild opnuðust tækifæri erlendis sem áður voru ekki fyrir möguleg.
Skautasambandið hefur fyrst og fremst unnið að uppbyggingu á íþróttinni hér á landi með framtíðina í huga. Þetta uppbyggingarstarf hefur aðallega falist í því að mennta þjálfara, dómara og eftir breytingar á nýju dómarakerfi ISU, menntun tæknifólks.
Skautarar hér á landi hafa tekið miklum og örum framförum. Fyrst og fremst má þar þakka yfirbyggingu skautasvella hér á landi. Einnig því breytta hugarfari sem átti sér stað í kjölfar verkefnis þess sem var sett af stað á vegum ISU sem hlaut nafnið Finnlandsverkefnið. Þetta verkefni gekk út á það að mennta þjálfara og bæta árangur hjá skauturum. Þrátt fyrir þessi framfaraspor er enn talsvert langt í land að Ísland verði í toppbaráttu á erlendum vettvangi þó að sjálfsögðu sé það langtímamarkmið okkar. Til þess að það geti orðið að veruleika eru enn nokkur baráttumál sem þurfa að vinnast. Þar má fyrst nefna lengingu á skautatímabilinu, en í dag er það aðeins 8 mánuðir en þyrftu að vera 11 mánuðir. Einnig þarf meiri ístíma í hverjum mánuði því að Listhlaup á skautum er einstaklingíþrótt sem byggir á styrk, tækni, færni og liðleika. Þetta krefst mikils tíma og mikillar elju við æfingar hjá skauturum.