Deildarval
Fréttir

Grunnpróf ÍSS í september 2010

Dagana 11 - 26 september fara fram Grunnpróf ÍSS í öllum keppnisflokkum A og B
Nánari upplýsingar um prófdaga og tíma verða birtar þ. 3. september. (Próftími fer fram á æfingartíma félaga, félögin þurfa því að senda inn upplýsingar um hvaða ístíma þeir geta mögulega nýtt fyrir prófin í þeirra félagi)

Aðildarfélög skila inn til ÍSS skráningum í prófin.
Tekið verður við skráningum fram til 1. september 2010, próftökugjald ber að greiða sama dag og senda afrit af kvittun til skautasamband@skautasamband.is

Skráningareyðublöð í Grunnpróf ÍSS eru á heimasíðunni undir liðnum Grunnpróf og ber að skila á því formi.  Fylla þarf út allar upplýsingar um hvern skautara. Önnur form eru ekki tekin gild. Ekki verður tekið við skráningum eftir 1. september 2010 fyrir próf í september.

Hafi félag ekki skráð í próf og greitt prófftökugjald fyrir 1. september er litið svo á að ekki þurfi að hafa Grunnpróf hjá viðkomandi félagi í september.


Til baka