Skautakona ársins 2016
- Details
- Fréttir 27.12.16
Emilía Rós Ómarsdóttir hefur verið valin Skautakona ársins 2016 af stjórn Skautasambands Íslands. Emilía Rós keppir í listhlaupi á skautum fyrir hönd Skautafélags Akureyrar og er á sínu öðru ári í Unglingaflokki A (Junior). Er þetta í annað sinn sem hún hefur hlotið nafnbótina Skautakona ársins en hún hlaut verðlaunin einnig árið 2015.
Helsta afrek Emilíu Rósar á árinu er stigamet hennar í skori í stuttu prógrami á Vormóti Skautasambands Íslands 2016. Hún hlaut 38.91 stig í stuttu prógrami og 61.31 stig í frjálsu prógrami og var heildarskor hennar á mótinu 100.22 stig. Meðaltal af heildarskori Emilíu Rósar á árniu er 93.09 stig.
Emilía Rós hefur verið virkur keppandi bæði innanlands og utan á árinu. Hún tók þátt á þremur alþjóðlegum mótum, RIG, Norðurlandamótinu í Svíþjóð og í ISU mótaröðinni Junior Grand Prix í Tallin, Eistlandi, í október síðastliðnum.
Þjálfari Emilíu Rósar í gegnum tíðina hefur verið Iveta Reitmayerova en núverandi þjálfari hennar hjá Skautafélagi Akureyrar er Danylo Yefimtsev. Emilía Rós er kappsfullur íþróttamaður sem leggur sig fram í íþrótt sinni og er yngri iðkendum góð fyrirmynd bæði í framkomu og viðhorfi til íþróttarinnar.
Skautasambandið óskar henni hjartanlega til hamingju með titilinn.
Mynd Helga Hjaltadóttir