Frábær árangur á Alþjóðaleikum Ungmenna 2016
- Details
- Fréttir 14.01.16
Nú rétt í þessu hafnaði Marta María Jóhannsdóttir í 2.sæti á Alþjóðaleikum Ungmenna 2016 (International Children's Games / ICG) sem fram fara í Innsbruck, Austurríki.
Auk þess að lenda í 2.sæti sló þessi unga og efnilega skautakona íslenska stigametið í stutta prógraminu (fékk 31.81 stig), frjálsa (fékk 54.68 stig) sem og heildarstigamet (fékk 86.49 stig) í Stúlknaflokki A (Advanced Novice). Fyrra heildarstigamet átti Emilía Rós Ómarsdóttir með 81.05 stig.
Allar íslensku stúlkurnar stóðu sig sömuleiðis með prýði. Ásdís Arna Fen Bergsveinsdóttir hafnaði í 10.sæti með 69.00 í heildarstig en alls kláruðu 30 stúlkur mótið. Thelma Kristín Maronsdóttir hafnaði í 22.sæti með 50.28 stig og Helga Karen Pedersen varð 26. Með 48.09 stig.